top of page

TEYMIÐ

ILH_edited_edited.jpg

Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving

Lífsþjálfi 

Ég hef upplifað svo magnaðar breytingar með lífsþjálfunarfræðunum að mig langaði að kafa dýpra og læra þessi fræði. Þetta er lífsstílsbreyting sem ég brenn fyrir að kenna sem flestum, ungum sem öldnum. Lífsþjálfun hefur haft þau áhrif á mitt líf að nú er ég komin með fókus, eins og og ég hafi áður verið með vanstilltan fókus á sjónauka lífsins en með réttum fókus varð ALLT kýrskýrt.

 

Möguleikarnir hrúguðust inn og líf mitt stækkaði um mörg númer samt ekki á fötunum mínum því að númerin þar minnkuðu ;) 

teymi-vrj_edited.jpg

Valdís Rut Jósavinsdóttir

Lífsþjálfi 

 

Fyrir mér er lífsþjálfun svo kröftug og einföld og ég held að það hafi verið það sem ég heillaðist mest að - lífið þarf bara ekki að vera svona flókið eins og ég var búin að hafa það í hausnum á mér í alltof mörg ár.

 

Ég hef alltaf haft gaman af allskonar sjálfsrækt en verkfæri lífsþjálfunar eru búin að gjörbreyta lífi mínu, þ.e. forritunum mínu. Að breyta gömlum og úreltum forritum sem þjóna mér ekki í dag - það má víst - og búa mér til ný og spennandi forrit sem þjóna mér í dag.

 

Þessi kröftuga hugsunarvinna sem tengist því að breyta forritunum mínum eru bara algjörlega amazing og ég upplifi svo mikla gleði og kraft og sjálfstraustið mitt hefur aukist stjarnfræðilega mikið. Ég ætla aldrei að hætta að stækka, vaxa og læra með því að spyrja mig kröftugra spurninga á hverjum degi. 

teymi-þj.jpg

Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Lífsþjálfi 

Ég brenn fyrir að hjálpa fólki að styrkja sig og vaxa sem manneskjur og finnst mér lífsþjálfunarfræðin svo ótrúlega kröftug, einföld og skemmtileg leið til þess.

 

Fyrir mér er lífsþjálfun leið til að sanna fyrir mér og þeim sem hún snerti, að lífið þarf bara ekki að vera svona flókið eins og ég var búin að hafa það í hausnum á mér í alltof mörg ár. Að læra á sjálfa mig og breyta hugsunum mínum er svo magnað að ég varð að læra það og kenna eins mörgum og ég mögulega get.

 

Mitt mottó er að fólk minnist mín sem konu sem ávalt var að vaxa og læra.

bottom of page