TEYMIÐ

Þórdís Jóna Jakobsdóttir
Lífsþjálfi
Nafn
Þórdís Jóna Jakobsdóttir
Fæðingardagur og ár
18. mars 1972 - Húsvík
Fjölskylduhagir
Ég er gift Veigari Sigurði Jónssyni og saman eigum við 5 börn, þrjú tengdabörn og 5 barnabörn sem verða bráðum 7.
Heima
Við erum hálfgerðir sígaunar við búum bæði í Hvalfirði sem og í höfuðborginni.
Áhugamál
Ferðalög á Íslandi sem og erlendis. Öll útivist og hreyfing eins og fjallgöngur, fara á mótorhjól og nú nýjast fjallarafmagnshjól. Einnig byrjaði ég nýlega á að “stunda” sjósund eða kannski mjög vel í lagt samt kannski að segja stunda en langar til að prófa mig áfram í því
Fallegasti staður sem þú hefur komið á
Dynjandisvogur í Arnarfirði en annars bara elska ég Ísland í fallegu veðri og gæti nefnt marga staði. Lysefjord og Preikestolen er það sem er mér ofanlega í huga.
Sturlaðar staðreyndir um mig
Ég varð íslandsmeistari í klippingu og litun nema 1993, tók meiraprófið og vann sem vöru- og rútubílstjóri í smá tíma.
Af hverju lífsþjálfun
Því ég brenn fyrir að hjálpa fólki að styrkja sig og vaxa sem manneskjur og finnst mér lífsþjálfunarfræðin svo ótrúlega kröftug, einföld og skemmtileg leið til þess.
Fyrir mér er lífsþjálfun leið til að sanna fyrir mér og þeim sem hún snerti, að lífið þarf bara ekki að vera svona flókið eins og ég var búin að hafa það í hausnum á mér í alltof mörg ár. Að læra á sjálfa mig og breyta hugsunum mínum er svo magnað að ég varð að læra það og kenna eins mörgum og ég mögulega get.
Mitt mottó er að fólk minnist mín sem konu sem ávalt var að vaxa og læra.
Nám
Grunnskólanám í barnaskóla Húsavíkur, Varmalandsskóla (heimavistarskóli) í Borgarfirði, Réttarholtsskóla og kláraði svo á Laugum í Reykjadal.
Hársnyrtisveinn frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Markþjálfi - Evolvia
Fíkni og fjölskylduráðgjafi - Ráðgjafarskóli Íslands
Coach Tools Certified lífsþjálfi frá The Life Coach School í Miami í Bandaríkjunum.
