ÞJÓNUSTA
Einstaklingstímar
Langar þig að kynnast sjálfri þér betur og jafnvel upp á nýtt?
Það er svo ótal margt sem býr innra með okkur, eins og draumar og langanir.
Þú hefur jafnvel byggt upp sjálfsmynd þína í gegnum ævina á því sem aðrir hafa sagt eða gert og trúir að það sé í raun allt satt og rétt.
Hvað ef það má breyta ?
Tilfinningar eins og óöryggi og vanmáttur lita oft okkar daglega líf og eru þess vegna hindranir til vaxtar. Þegar þú kemur í lífsþjálfun hefst svo skemmtilegt ferli til breytinga.
Allt í einu kviknar ljós og þig langar að eflast.
Með lífsþjálfa finnur þú mátt þinn og færð verkfæri sem virka þér til vaxtar.
Það að stjórna þinni eigin líðan er svo ótrúlegur máttur.
Tímarnir fara fram á ZOOM og er hver tími 50 mínútur.
Vertu í sambandi fyrir frekari upplýsingar.
Hópþjálfun
Við hjá Veldu þig fundum á eigin skinni hvað það var magnað og hvetjandi að hafa félaga til að deila með og heyra fleiri sjónarmið þegar við vorum að vinna að verkefnunum okkar og markmiðum. Vera gripin þegar við bregðum aðeins útaf eða hikum í sjálfsvinnu okkar.
Að vinna saman í hóp er svo skemmtilegt, fá breiðari sýn á lífið og uppgötva svipaðan hljómgrunn hjá hópnum, að skiptast á skoðunum, fá hugmyndir, spegla sig í öðrum, hlæja og gleðjast saman er mjög svo nærandi.
Að vera með “vitni” í markmiðavinnunni gerir úrvinnsluna kröftugri og skýrir heildarmyndina. Við kennum magnaðar leiðir í gegnum lífsþjálfunarfræðin til þess að ná fram þeim breytingum í lífinu sem þið viljið ná fram. Þið þurfið ekki að vera með sömu framtíðarsýn til að ná árangri saman. Hvert og eitt ykkar vinnur að sínum draumum og sínum væntingum.
Að vinna í gleði er frábær leið til þess að fyllast þeim krafti sem þarf til þess að ná markmiðum sínum.
Í þeim krafti blómstrar seiglan okkar og heldur okkur á bestu brautinni, í átt að betri framtíð. Eitt lítið skref á dag verður stór breyting á mánuði.
Hvaða litla skref getið þið stigið í dag í átt að farsælli og skemmtilegri framtíð?
Og þetta má vera gaman!
Hvernig væri að setja saman hóp og vinna saman í skemmtilegri sjálfsrækt,
eflast og vaxa?
Vertu í sambandi fyrir frekari upplýsingar.
