TEYMIÐ

Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving
Lífsþjálfi
Nafn
Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving
Fæðingardagur og ár
29. júlí 1966 - Í Reykjavík
Fjölskylduhagir
Gift Jóni Kr. Gíslasyni og við eigum tvær dætur, tvö tengdabörn og 3 barnabörn.
Heima
Við búum í Mosfellsbæ og eigum svo bústað í Borgarfirði sem við erum mikið í og er okkar sælureitur.
Áhugamál
Ég á mörg áhugamál, göngur í náttúrunni, ferðalög innanlands og utan, lestur og hlustun á allskonar bókmenntum og fræðiefni. Að vera með fólkinu mínu og fylgja því eftir í þeirra íþróttum og fjöri.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á
Dynjandi í Arnafirði er minn uppahalds staður, allra fossa fallegastur.
Sturluð staðreynd um mig
Ég hef farið á námskeið til að geta lagað skemmdir á 44"jeppadekkjum svo hægt sé að bjarga sér t.d á jöklum eða á hálendinu.
Ég hef sungið ABBA lag á sýningu á hótel Íslandi (óvart)
Af hverju lífsþjálfun
Ég hef upplifað svo magnaðar breytingar með lífsþjálfunarfræðunum að mig langaði að kafa dýpra og læra þessi fræði. Þetta er lífsstílsbreyting sem ég brenn fyrir að kenna sem flestum, ungum sem öldnum. Lífsþjálfun hefur haft þau áhrif á mitt líf að nú er ég komin með fókus. Það er eins og ég hafi áður verið með vanstilltan sjónauka á lífið en með lífsþjálfun varð ALLT kýrskýrt.
Möguleikarnir hrúguðust inn og líf mitt stækkaði um mörg númer samt ekki á fötunum mínum því að númerin þar minnkuðu ;)
Nám
Ég var í grunnskóla Vopnafjarðar en tók svo síðasta árið mitt í grunnskóla í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Ég er hársnyrtimeistari frá Iðnskólanum í Rvk. Coach Tools Certified lífsþjálfi frá The Life Coach School í Miami í Bandaríkjunum.
