UMSAGNIR
Helgi 43 ára
"Að fara í lífsþjálfun hefur einfaldað líf mitt svo um munar. Ég hafði ekkert endilega mikla trú á þessu í byrjun en annað hefur svo sannarlega komið á daginn. Eftir að hafa verið í lífsþjálfun í rúmlega tvo mánuði líður mér eins og verkefni sem áður voru yfirþyrmandi séu leikur einn. Ekkert verkefni er mér ofviða."
Gunnar 57 ára
"Ég var á þeim stað í lífinu að ég vissi ekkert hvort ég var að koma eða fara, fannst allt frekar dauft og litlaust. En eftir að ég fór að njóta leiðsagnar lífsþjálfa er þetta svart/hvíta líf að komast í lit. Ég þurfti hjálp við að sjá allt það góða sem lífið hefur upp á að bjóða og minna mig á að hafa gaman af þessu öllu og það hef ég öðlast síðan ég hóf mína vegferð hjá lífsþjálfa í Veldu þig."
Sigga Guðmunds 60 ára
"Lífsþjálfun er það heimsins besta sem hefur ratað inn til mín og núna bara á nokkrum mánuðum besti parturinn af mínu lífi. Í lífsþjálfun lærir þú tækni við að ná stjórn á lífinu. Ég var búin að prófa alls konar hluti þegar lífþjálfunin læddi sér inn í líf mitt alveg óvart og í dag veit ég að ég stjórna þessu alfarið sjálf og það er svo dásamlegt."
Áslaug 57 ára
„Að vera í hópi í lífsþjálfun hjá Veldu þig, hefur verið í senn lærdómsríkt og valdeflandi. Þótt við séum að fást við ólík verkefni í lífinu þá eiga verkfæri lífsþjálfunar alltaf við og ávallt hefur verið hægt að máta eigin aðstæður við það sem aðrir eru að fást við og læra af því. Veldu þig lífsþjálfar hafa sýnt okkur mikla þolinmæði við það að breyta lífsháttum okkar og gefið mikið af sér í þeirri vinnu. Það er sannarlega hægt að mæla með lífsþjálfun hjá Veldu þig.“
