top of page

TEYMIÐ

teymi-vrj_edited.jpg

Valdís Rut Jósavinsdóttir

Lífsþjálfi 

Nafn 

Valdís Rut Jósavinsdóttir.

Fæðingardagur og ár 

13. mars 1975 - Kálfsskinn á Árskógsströnd.

Fjölskylduhagir

Ég er gift Jóhanni Heiðari Jónssyni og saman eigum við þrjú börn, þrjú tengdabörn og eitt barnabarn. 

Heima

Akureyri og við elskum það. Alltaf gott veður á Akureyri ;) 

Áhugamál 

Ferðalög jafnt á Íslandi sem erlendis, öll hönnun - ætlaði mér alltaf að vera innanhússarkitekt þegar ég var yngri, golf, skíði - jafnt gönguskíð sem svigskíði og svo höfum við hjónin verið aðeins að prófa fjallarafmagnshjól sem okkur finnst mjög skemmtilegt. 

Fallegasti staður sem þú hefur komið á  

Arnarstapi á Snæfellsnesi og Króatía. 

Sturlaðar staðreyndir um mig 

Ég var ráðinn 20 ára gömul eftir að ég lauk stúdentsprófi sem innkaupastjóri í búsáhalda- og gjafavöru deild Kaupfélags Eyfirðinga, var með mannaforráð og jók veltuna um mörg hundruð prósent en ég hafði unnið í Byggingavörudeild KEA sem sumarstarfsmaður frá 14 ára aldri. 

Af hverju lífsþjálfun  

Vá já - ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. 

Fyrir mér er lífsþjálfun svo kröftug og einföld og ég held að það hafi verið það sem ég heillaðist mest að - lífið þarf bara ekki að vera svona flókið eins og ég var búin að hafa það í hausnum á mér í alltof mörg ár. Ég hef alltaf haft gaman af allskonar sjálfsrækt en verkfæri lífsþjálfunar eru búin að gjörbreyta lífi mínu, þ.e. forritunum mínu. Að breyta gömlum og úreltum forritum sem þjóna mér ekki í dag - það má víst - og búa mér til ný og spennandi forrit sem þjóna mér í dag. Þessi kröftuga hugsunarvinna sem tengist því að breyta forritunum mínum eru bara algjörlega amazing og ég upplifi svo mikla gleði og kraft og sjálfstraustið mitt hefur aukist stjarnfræðilega mikið. Ég ætla aldrei að hætta að stækka, vaxa og læra með því að spyrja mig kröftugra spurninga á hverjum degi. 

Nám

Lögbundið grunnskóla nám í Þelamerkurskóla í Hörgárdal. 

Stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.

B.Ed.-próf í grunnskólakennarafræðum.

Símenntun, Háskólans á Akureyri - Stjórnendanám.

 

Little Flower Yoga - Yogakennara- og hugleiðslunám. 

Happy Hips - Kennaranám í bandvefslosun.

Hugarfrelsi - kennsluréttindi.

Coach Tools Certified lífsþjálfi frá The Life Coach School í Miami í Bandaríkjunum.  

bottom of page