top of page
0bee395a-1d04-43ac-aaa7-4073e3eb692a.jpg

Hvað er lífsþjálfun?

Í lífsþjálfun lærir þú að auðga líf þitt, líða betur og ná markmiðum þínum.

 

Lífsþjálfi hjálpar þér að sjá og skilja hvað drífur þig áfram og hvað gæti mögulega verið að halda aftur af þér.

 

Lífsþjálfi hjálpar þér við að efla hugsanir þínar og ná fram þeim breytingum sem þú vilt gera í þínu lífi. 


Með lífsþjálfa getur þú t.d. unnið með:
 

  • Sjálfstraustið 

  • Sjálfsmyndina 

  • Markmiðin 

  • Heilsuna 

  • Þyngdina

  • Samskipti þín og sambönd

  • Fjármálin
     

Við hjá Veldu þig tölum gjarnan um þetta sem endurforritun og erum við að vinna mikið með að breyta gömlum forritum í huga okkar og hanna ný frábær forrit sem vinna með okkur í okkar framtíðarsýn.

Af hverju ættir þú að fara til lífsþjálfa?

Lífsþjálfun er fyrir alla sem langar að kynnast sjálfum sér betur.

 

Hvaða langanir hef ég?

 

Hvað drauma hef ég? 

 

Hver er ég? 

 

Hvað er ég fær um?

 

Þú finnur svörin með þínum lífsþjálfa. 


Lífsþjálfi hjálpar þér að sjá hvað er að gerast í þínum eigin huga. Þegar þú hefur áttað þig á því hvað er að gerast þar, getur þú fyrst farið að gera breytingar og náð þeim markmiðum sem þig langar til að ná í lífinu. 

 

Lífsþjálfi hjálpar þér við að koma auga á hugsanaskekkjurnar í huga þínum og sjá og skilja hvar þú ert mögulega að mæta hindrunum í þínum vexti.

Við hverju má búast í tíma hjá lífsþjálfa?

Þú verður undrandi á þeirri innsýn og þeim einfaldleika sem þú lærir í lífsþjálfun. Hvort sem þú ert í einkaþjálfun eða hópþjálfun.

 

Það er svo magnað að upplifa að vera við stjórn í eigin lífi. 


Væri ekki gott að geta einfaldað lífið?


Hvað ef það er hægt?
 

Í lífsþjálfun lærir þú að forgangsraða og vanda vel í hvað þú verð tíma þínum. Þú lærir að tileinka þér að koma skipulagi á hugsanir þínar, koma þeim í framkvæmd fljótt og örugglega.
 

Við fáum öll 24 tíma í sólarhringnum. Hvernig vilt þú nýta þína 24 tíma?

GLEÐI - KRAFTUR - SEIGLA

Í okkar eigin sjálfsvinnu uppgötvuðum við mikilvægi þessara þriggja þátta.
 

Þegar við fórum meðvitað að nýta okkur gleðina til þess að fylla okkur af kraftinum sem felst í gleðinni fundum við á eigin skinni hvað allt varð einfaldara og skemmtilegra.

 

Í þessum krafti  fundum við seigluna sem við búum yfir til þess að halda alltaf áfram.

GLEÐI

Rannsóknir sýna fram á að gleði hefur jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu okkar. Hún getur hjálpað okkur að draga úr streitu, bæta ónæmiskerfið og hjálpa okkur að takast á við áskoranir lífsins með jákvæðu viðhorfi og trú á eigin getu. 

Með því að tileinka sér gleði í lífinu stuðlum við að bættri sjálfsmynd og sjálfstrausti.

 

Gleði gerir lífið einfaldlega innihaldsríkara og skemmtilegra og er því mjög mikilvægt að gefa henni rými í okkar daglega amstri og vera þakklát fyrir alla litlu hlutina í lífinu sem auka lífsgæði okkar til muna.

KRAFTUR

Kraftur gefur okkur orku til þess að framkvæma það sem við þurfum að gera, hvort sem það er í vinnu, námi eða í okkar daglega lífi og með honum getum við sett okkur háleit markmið og unnið af eldmóð að því að ná þeim. 

Kraftur hefur jákvæð áhrif á heilsuna okkar, bæði líkamlega og andlega.

 

Líkamleg hreyfing, hollt mataræði og góðar svefnvenjur stuðlar að betri heilsu en staðreyndin er sú að oft þurfum við að nota kraftinn okkar til þess að framkvæma þessa einföldu hluti. Krafturinn hjálpar okkur einnig að takast á við streitu, kvíða og áhyggjur. 

Krafturinn okkar getur líka verið smitandi hvatt aðra til góðra verka sem við fáum svo til baka í góðum samskiptum og þakklæti. Í stuttu máli, kraftur er lykilatriði í að lifa fullnægjandi og árangursríku lífi.

SEIGLA

Seigla er eitt af okkar uppáhalds orðum hjá Veldu þig. Mikilvægi seiglu í lífinu er mjög mikið. Seiglan gerir okkur kleift að takast á við áskoranir, hindranir og mótlæti á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.

Seiglan er okkar besti vinur og hjálpar okkur/fær okkur til þess að yfirstíga erfiðleika og jafnt stórar sem smáar áskoranir. Seigla gerir okkur kleift að halda áfram þrátt fyrir hindranir og áföll og hjálpar okkur að læra af þeim og standa uppi sterkari.

 

Þess vegna er svo mikilvægt að finna seigluna sem býr innra með okkur öllum.

Þegar við setjum okkur markmið þá er seiglan okkar besti vinur. Hún gerir okkur kleift að mæta erfiðleikum með jákvæðu hugarfari og styrk og viðhalda þeirri trú á að við getum sigrað hverja þá áskorun sem lífið leggur fyrir okkur.

bottom of page